Færsluflokkur: Bloggar

Mikið að gera

Jæja það er kominn tími til að láta aðeins í sér heyra, það er búið að vera mikið að gera hjá mér, ég byrjaði í vinnustaðanámi 7 janúar og er búin að vinna alla daga síðan, en í kvöld er síðasta vaktin hjá mér á deild A5 því miður, þetta er búið að vera skemmtilegur tími þarna og ætla ég að reyna ná á deildastjóra A5 á eftir og sjá hvort að ég geti ekki tekið starfsþjálfunina þarna hjá þeim, mig langar virkilega til að kynnast þessari deild betur.  Það er margt sem er að gerast þarna og vaktirnar misjafnar eins og þær eru margar.  Nú svo á mánudaginn á ég að byrja á deild 33C sem er geðdeild, skilst að hún sé bráðamóttaka fyrir anorexiur, alcoholsjúklinga og fleira svoleiðis en það kemur allt í ljós, ætla reyna að skreppa á morgun og vita hvort á nái á leiðbeinanda minn þar og setja niður vaktir, maður verður bara að vona að það gangi upp.  Ég veit svo sem fyrirfram að ég og geðið eigum ekki samleið en það þýðir ekkert annað en að vera jákvæður og reyna að komast í gegnum þetta sem ég vitaskuld geri, fer nú ekki að flýja af hólmi kominn þetta langt.  Nú svo á hún Fjóla mín afmæli á morgun, verður hún 17 ára skvísa, hún er byrjuð að læra á bíl, búin að taka 6 tíma held ég og gengur bara virkilega vel, hún fer í Ö1 fyrstu helgina í febrúar en 3 helgina fer hún og Tinna með pabba sínum og Sigrúnu í bústað, einnig fara eitthvað af barnabörnum hennar með, þetta verður ábyggilega góð ferð, hann hefur verið svolítið meira með þeim núna eftir að hann veiktist sem er bara gott mál, þær njóta hverrar stundar með honum sem þær geta.  Ég vildi óska að ég gæti tekið með sumarbústað á leigu einhverstaðar en held að ég geti það bara ekki, sýnist eins og það séu bara ekki bústaðir á lausu a.m.k. ekki hjá þeim sem ég gæti leyft mér að taka, en hver veit kannski einhvern tímann.  Annars er mig virkilega farið að hlakka til að klára námið, núna er ég farin að sjá fram á það að ég klári þetta í vor, er þetta stór áfangi fyrir mig að hafa getað þetta og er ég bara svolítið montinn með mig he he.


Gleðilegt ár

Já gleðilegt ár allir saman sem vilja lesa þetta hjá mér.  Nú er nýtt ár hafið og ýmis fyrirheit felast í því he he, a.m.k. er ég búin að lofa að gera ýmislegt á þessu ári svo verður bara að koma í ljós hvað af því stend ég við.  En hvað um það ég er búin að vera í fríi núna í nokkra daga og verið að undirbúa mig að hefa vinnustaðanám sem hefst á morgun, fór strax 2 jan. og ræddi við leiðbeinanda minn og við settum niður vaktir alveg næstu tvær vikurnar, byrja ég á kvöldvakt sem er fínt, kannski rólegra að byrja á kvöldvakt til að kynnast deildinni aðeins, vona ég innilega að Erla mæti bara líka og að við verðum samferða í gegnum þetta, þannig að núna framundan hjá mér er bara vinna og vinna og meiri vinna, a.m.k. næstu tvær vikurnar, kannski aðeins minna síðustu vikuna, fer eftir hvernig önnur helgi héðan í frá fer.  Nú ég þarf líka að koma mér að því að hafa samband við kvensjúkdómalækni, það er eitt af því sem ég hef lofað sjálfri mér að gera he he, þannig að það er fyrsta skrefið.  Núna ætla ég að skella mér í sund og slaka aðeins á í kuldanum, svo er þrettándakaffi hjá ÞR og svo kannski fer maður eitthvað að labba seinna í dag, allt liður í nýju ári og nýjum áheitum hehe.  Jæja best að hætta þessu rugli og koma sér í leppana svo hægt sé að komast úr húsi.

Nýjar myndir

Jæja ég var að setja inn nýjar myndir frá jólunum, má þar m.a. nefna sjaldgæfa sjón á mínu heimili en það er þegar allar kisurnar mínar sitja við sama diskinn og borða rækjur, en það var jólamaturinn þeirra, Perla kvæsti ekkert á yngri kisurnar við það hátíðarborðhald Smile.  Annar náði Kiddi líka öllum prófunum sínum, hvað annað, hann var með eina 7 og svo eitthvað af 9 og 10 í hinum fögunum svo hann stóð sig með glæsibrag.  Annars hafa jólin verið róleg og fín hjá mér, reyndar búin að borða allt of mikið nema hvað eru jólin ekki til þess, fór svo að vinna þann 25 des og verð að vinna fram á 2 jan. tek reyndar tvöfalda vakt á nýársdag eða allt svo kvöldvakt næturvakt, enda með stæl, svo verð ég eitthvað lítið á Hrafnistu eftir áramót fram á vorið, verð í vinnustaðanámi frá 7 jan. í 6 vikur, vinn þá reyndar á Hrafnistu aðra hvora helgi, aðallega til að fá smá útborgað en eftir þessar 6 vikur þarf ég að taka launalaust frí í 11 vikur en þá verð ég komin í starfsþjálfun, vonandi, fram að útskrift í maí og eftir það ætti ég að fara nálgast útskriftina eða þannig.  Jæja læt gott heita í bili, ætla að skella mér í bólið, var annars að horfa á afskaplega hugljúfa mynd á stöð 2, tók hana meira segja upp, hún hét hollidays, var svona ekta konumynd he he. Grin

 Sjaldgæf sjón

 Set hérna inn eina mynd af Kiöru, Perlu og Púka að snæða jólamatinn, eru þær ekki æðislegar allar saman Wink.

 

 

 

 

 


Fyrstu kynni Kiöru af jólatré

Var að reyna setja inn myndband af fyrstu kynnum af Kiöru af jólatrénu, er reyndar óskýrt en ætti samt alveg að sjást hvað er á því.  Læt eina mynd fylgja með af henni í trénu he he.

Fyrstu jól Kiöru 12-19-2007 5-32-07 PM 2112x2816


Frábær árangur

Já það má segja það að það sé frábær árangur hjá þessari fjölskyldu hvað prófin varðarSmile , nú erum við öll búin að fá niðurstöður prófa og náðu allir öllu, allt svo við sem erum í menntaskóla, Tinna er ekki búin að fá niðurstöðurnar hjá sér.  Fjóla var með eina 6, eina 9 og þrjár 8,Grin Anna Lísa var með eina 7, eina 9 og fjórar 8 Grin og ég var með 8 og 9Halo , sem reyndar gæti breyst í 9 og 9, þar sem ég skoðaði prófin mín og í hjúkrun 503 var ég með útkomuna 7,8 en svo fór ég að skoða þetta og leggja tölurnar saman meira að segja tvisvar og ég fékk út 9,1Gasp ,  einnig sýndi ég Ingu þetta en hún kenndi mér hjú 403, (Hildur sem kenndi mér 503 er nefnilega ekki á landinu) og hún fékk líka 9,1GetLost svo það þarf eitthvað að athuga þetta, en það skiptir svo sem ekki öllu, aðalmálið er að ég náði svo nú getur maður horft með björtum augum til framtíðarinnar, a.m.k. sér maður fram á það að ná því að klára skólann í vorWizard .  Kiddi sótti líka einkunnirnar sínar í dag, er reyndar ekki búin að heyra hans en á ekki von á öðru en að hann hafi náð þessu eina prófi sínu sem hann tók, allt annað var hann búinn að ná svo eins og ég segi   FRÁBÆR ÁRANGURGrin .  Núna getum við farið að slaka á og hlakka til jóla, ég hafði það af að taka til og þrífa að mestu hjá mér í gær, setti upp jólatréð, reyndar í samkeppni við Kiöru í sambandi við ljósaseríuna,Joyful hún vildi endilega vera reyna stela henni og smakka hana þegar ég var að reyna setja hana á tréð, einnig hefur hún skroppið nokkrum sinnum upp í tréð í morgun og hent niður nokkrum jólakúlumWhistling en þetta er bara eins og það á að vera, verða skemmtileg jól með allar kisurnar hérna sem hamast í jólatrénu, halda að þetta sé eitthvað spes dót fyrir þær Grin

Prófin búin

Jæja þá er ég búin í prófunum, nú er bara að bíða og vona að maður nái þessum tveim síðustu bóklegu fögum, ef það verður þá er bara vinnustaðanámið og starfsþjálfunin eftir, það verður fínt að vera laus við að sitja í tímum.  Fjólu hefur gengið vel í öllum sínum, er búin að fá einkunnir úr öllum nema úr stærðfræðinni, hefur verið með 8 og 9 í prófunum, bíð spennt eftir að vita hvað hún fær í stærðfræðinni, vona innilega að hún nái henni líka, hún er því miður ekki mjög sterk í stærðfræðiinni.  Nú svo er það bara vinna, vinna og meiri vinna framundan, fer að vinna í kvöld og alveg fram á mánudag, þannig að það er nóg að gera, svo á ég von á manni á eftir sem ætlar eitthvað að skoða snúrudótið í sambandi við TV, lykilinn og allt það dót, kannski get ég látið hann tengja sjónvarpið fyrir stelpurnar líka, hver veit. 

Smá fréttir

Jæja hér koma smá fréttir frá okkur, varla maður þori að skrifa á þetta blogg þar sem mbl. virðist geta tekið sér það bessaleyfi að birta skrifin manns, ekki nóg með það heldur allar helstu persónuupplýsingar um mann,Frown ég er ekki alveg nógu sátt við það,Angry hefði haldið að það þyrfti leyfi fyrir slíku, en hvað með það, maður verður bara að gæta að því sem maður skrifar. 

Annars er það helsta að frétta að Perla er orðin sjálfri sér líkSmile reyndar rólegri ef það er hægt, a.m.k. er hún ekki eins hvefsin við yngri kisurnar eins og hún var, kannski var henni farið að leiðast eigin félagsskapur þessa 10 daga sem hún var í einangrunGrin þar til saumarnir voru teknir, en hún er sem sagt eldhress og spræk ökkur öllum til mikillar ánægjuLoL.  

Annað er það helsta að ég er á kafi í prófalestri núna þessa dagana,W00t búin í prófi í hju503 og er að fara í próf í 403 á morgunGasp, verður gott að vera búin í þessu.  Nú Fjóla mín var að klára síðasta prófið sitt í gær, hún er búin að sjá niðurstöður úr nokkrum prófum eins og íslenskunni, enskunni og dönskunni, einnig lífsleikni og íþróttum og er hún búin að ná þeim öllumSmile, vantar bara niðurstöðurnar úr stærðfræðinni og náttúrufræðinni, vonandi nær hún þeim bara llíkaSmile.  Kiddi minn þurfti bara að fara í eitt próf í íslensku sem hann var í í gær en annars er hann búinn að ná öllum áföngum á þessari önnWink.  Svo er það hún Tinna skotta sem er einnig á fullu í prófum, er hennar fyrsti prófdagur í dag en hún er búin að taka nokkur sem voru bara á skólatíma eins og t.d. dönskunaTounge.  Jæja læt gott heita í bili. 


Jólabaksturinn

Jæja þá er ég byrjuð á jólabakstrinum,  reyndar að verða búin að baka, búin að nota helgina vel. WinkÁ föstudeginum hnoðaði ég í 3 tegundir sem Tinna og Fjóla bökuðu úr, en svo í dag er ég að gera tvær tegundir sem eru hrærðar í hrærivél og settar á plötu með teskeið, önnur tegundin er svona maregnskókostoppar með súkkulaði og salthnetum í, algjört sælgæti,Tounge en hin er gömul uppskrift frá mömmu heitir einfaldlega vélhrærðar smákökur, en það er súkkulaði í þeim líka og kúrenur, þessar smákökur eru líka rosalega góða. Grin Ég er voða ánægð með sjálfa mig og stelpurnar mínar að ná að klára jólabaksturinn þessa helgina, einhvern vegin finnst mér ég aldrei geta hlakkað almennilega til jóla fyrr en baksturinn er búinn.  Einnig er ég búin að setja upp jólaóróana mína í stofuna en svo verður skreytt seinna, annað hvort næstu helgi eða í vikunni á eftir, a.m.k. reyni ég alltaf að skreyta fyrstu vikuna í desember.  Við mæðgurnar erum allar að vinna næstu helgi þannig að líklega verður skreytt bara í vikunni. GetLost Svo fer maður fljótlega að setjast niður og skrifa jólakortin, líklegast kaupum við bara kortin í ár en undanfarin ár hafa stelpurnar og ég búið til kortin en ekki gefist tími í það núna. Halo

Annað er það að frétta að Perla okkar er öll að koma til, hún er farin að borða og drekka alveg og er ég mjög fegin því.  Hún er og verður á sýklalyfjum í einhverja daga.  Reyndar er hún afskaplega óhress með að komast ekki út, vakti mig í morgun með óánægjumjálmi yfir því að hún gat ekki opnað gluggann til að komast út, var ekkert samt í því að gefa þetta eftir en því miður má hún ekki fara út næstu daga, a.m.k. ekki fyrr en búið er að fjarlægja saumana hjá henni en það verður gert minnir mig 3 des.  


Gleymska

Ég gleymdi alveg að nefna það að ég náði vitaskuld að skila ritgerðinni af mér á réttum tíma og er meira að segja búin að fá hana til baka aftur, fékk ég 8,5 fyrir hana sem ég er bara mjög sátt við Grin , bjóst alveg við að fá eitthvað lélegt fyrir hana, því ég og ritgerðir eigum enga samleið, aðrir voru ekki eins sáttir við sínar einkunnir held ég og skil það vel t.d. sú sem situr við hliðin á mér fékk 7,5 en hennar ritgerð var reyndar miklu betur gerð en mín þannig að ég er ekki alveg að fatta þetta.  Kennarinn sagði í umsögninni um mína ritgerð að þetta hefði verið mjög góð ritgerð, frásögn Maju góð og snert viðkvæma strengi, ég væri með góðar heimildir sem ég hefði nýtt mér vel.Smile

Perla komin heim frá dýra.

Já jæja ég gat sótt hana Perlu okkar til dýralæknisins aftur í gær, rúmlega tvö fór ég og sótti hana, hafði þá hringt á undan mér til að ath. líðan hennar og var hún þá rétt að vakna, sagði dýralæknirinn mér að þetta hefði vera meira en þeir bjuggust við.  Legið í henni hefði verið orðið svo stórt að þeir héldu að þeir væru að fjarlægja eitthvað allt annað en það.  Nú þegar ég mætti á dýralæknastofuna til að ná í hana var hún eiginlega sofandi enn í töskubúrinu, var búið að breiða yfir hana handklæði og mér sagt að reyna halda hita á henni þennan dag sem ég gerði.  Nú svo var ég spurð að því hvort ég vildi sjá herlegheitin sem fjarlægð hefðu verið og langaði mig til þess, dýralæknirinn sagði við mig að venjulegt leg í ketti væri um fingurbreidd að þykkt, eða ca. 1/2 cm., síðan sýndi hún mér það sem hafði verið fjarlægt úr Perlu og fannst mér það líta út eins og meðal stórt hrossabjúga, svo stórt og mikið var það, þetta var ca. 5-6 ca, á þykkt og frekar langt líka, svo var þarna heljarinnar graftarpollur með, þetta var allt í plastpoka, nema hvað að dýralæknirinn sagði að graftarpollurinn hefði sprungið í höndunum á þeim þegar þeir voru að taka þetta úr Perlu, eitthvað hefði lekið inn í kviðinn á henni en þeim hefði tekist að skola allt mjög vel en hún var sett á sýklalyf, sterk, næstu 8 dagana, hún er með ansi langan skurð á kvið eða allt að 10 cam langan, síðan þarf hún að fara í saumatöku í byrjun des. og má vitaskuld ekki fara út fyrr en eftir saumatökuna.  Reyndar léttist hún töluvert við að láta fjarlægja þetta allt innan úr sér og er bara orðin þvengmjó, skinnið hangir á henni núna.  Hún var frekar slöpp í gær en er eitthvað að hressast, gengur reyndar ekkert allt of vel að borða þar sem hún er með skerm á sér, eitthvað borðaði hún nú samt í gær en kastaði því upp aftur, sennilega afleiðing svæfingarinnar.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband