16.12.2006 | 17:01
Búin að fá einkunnirnar
Jæja þá er ég loksins búin að fá einkunnirnar og náði öllum prófunum með stæl
og Anna Lísa mín líka
og við vorum ekkert smá fegnar, Anna Lísa var svona nokkuð viss um að hafa fallið í íslensku en hún náði og fékk 8 sem mér finnst bara stórglæsilegt hjá henni,
lægsta einkunnin hennar var 7 sem var í öðrum ensku áfanganum og var það aðallega stafsetningin sem var að draga hana niður þar, en mig grunar að hún sé lesblind
og fleiri hafa reyndar bent henni á það m.a. hinn enskukennarinn hennar var síðast að tala um það við hana í gær að hún ætti að drífa sig í að láta prófa sig
, því hún ber öll merki þess að vera lesblind en það sést bara á stafsetningunni. En hvað um það lægsta einkunin mín var 7 í lyfjafræði en svo fékk ég 9 í hjúkrun verklegri og bóklegri,
10 í upplýsingatækni (tölvu)
og í skólasókn var ég með 10 og líkamsbeitingin var bara staðist og svo sundið 7 en það er reyndar stöðluð einkun þar sem ég mæti bara í sund og syndi þegar mér hentar, læt bara stimpla blað fyrir mig og skila inn. En við mæðgur megum bara vera stoltar af okkur og hvor annarri með þennan frábæra árangur
. Svo nú getur maður virkilega farið að klára að undibúa jólin og hlakka til þeirra. Gott í bili.









Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.