29.11.2006 | 10:33
Síðasti tíminn í hjúkrun
Já núna er ég í skólanum og var í síðasta tímanum í bóklegri hjúkrun,
verklega kláraðist fyrir nokkrum dögum, en síðasti bóklegi fór nú bara í það að fá sér kaffi og með því
en það var bara fínt, nokkrar komu með þvílíkar stríðstertur, svo var kaldur brauðréttur, tómata og hvítlauksbrauð frá Jóa Fel og fleira og var þetta þvílíkt nammi gott
, enda getur maður varla hreyft sig núna svo södd er ég
. Nú annað er svo sem allt gott að frétta, mamma er búin að fá tíma í MRI en hún á að fara á mánudaginn 4 des.
og er ég að spá í að fara með henni, henni til halds og traust
, enda verður víst einhver að keyra hana þar sem hún fær róandi sprautu klst. áður en hún ferið í tækið því hún fær svo mikla innilokunarkennd í rörinu eins og hún kallar MRI tækið
. Þannig að það er víst eins gott að einhver fer með henni, annað hvort ég eða Heiða systir. Núna er Tinna mín að byrja selja WC pappí og eldhúsrúllur til að kosta ferðina út í sumar en hún er að fara með Skólahljómsveit Kóp. til Svíþjóðar á eitthvað lúðrasveitarmót
. Vonandi á henni eftir að ganga vel með að selja
. Gott í bili bæbæ
.










Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.