Veikindi

Jæja góðan daginn eða þannig, já nú er ég bara hálf lasin, svaf illa í nótt vegna magaverkja og í morgun þurfti ég að hendast á WC og það gekk bæði upp og niður af mér Gráðugur gaman, gaman eða þannig, ég druslaðist samt í skólann vegna þess að ég var að fara í próf í hjúkrun og sít núna við tölvuna í skólanum að skrifa, ákvað að reyna halda daginn út í skólanum fyrst ég var mætt en heilsufarið er ekki upp á sitt besta samt aðeins skárra en fyrst í morgun, einhver ólga í mér samt og maður verður að passa sig að leysa alls ekki vind það gæti orðið eitthvað kostulegt Skömmustulegur.  Nú annað er svo sem ekki merkilegt.  Ætlaði að fara í bæinn í dag og kíkja í Kúnígúnd þar sem ég þarf ekki að vinna en það verður víst að bíða betri tíma Gráta eða heilsan að lagast a. m.k.   Sé til seinna í dag hvað verður hvort að heilsan lagast eitthvað eða hvort að ég leggst bara undir feld og læt mér líða illa eftir að heima er komið.  Læt gott heita í bili veikindakveðjur bæb.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband